Bloggsvæði Ingu

Inga í Köben

10.09.2007 15:59:33 / ingahall

Nýtt blogg

Er búin að flytja mig yfir á

http://ingahall.typepad.com

er að breyta aðeins til, var orðin leið á svona bloggi

 Kveðja, Inga


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 12:37:08 / ingahall

Veiði

Já, nú erum við komin til baka eftir okkar árlegu veiði í Gljúfrá í Borgarfirði og ekki var veiðin upp á marga fiska, ekki einn einasti fiskur kom á land hjá okkur enda rann áin varla. :(

En svo fengum við að vita það daginn eftir að sá sem kom á eftir okkur var varla búin að setja færið út þegar hann var komin með fisk. :( Gott hjá honum.....

 Annars er bara rigning hjá okkur núna en alveg rosaleg hlítt og gott veður.

 Læt þetta duga í bili,

kv. Inga

ǣȒ楴汴e敧敮慶

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 11:53:42 / ingahall

Sumarfrí

Þá er ég komin í sumarfrí til Íslands og hef það líka þetta rosalega fínt í sumarbústaðnum.

Sólin er búin að skína skært síðan ég kom í sveitina en það hefur aðeins dregið fyrir sólu í dag en það spáir sól aftur eftir helgi 8)

Annars er bara allt ljómandi gott hjá okkur, ferðalög og veiði framundan og ég geri ekki ráð fyrir að það verði mikið bloggað næstu dagana  nema eitthvað sérstakt komi upp á.

 

Sólar kveðjur

Inga 


» 2 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 07:20:34 / ingahall

Smá frí

áður en við komum heim í ennþá meira frí. En við ákváðum að skreppa til Borgundarhólms (Bornholm) á föstudaginn, vorum búin að lofa að koma í heimsókn þangað áður en við færum heim í sumar, en vinur hans Gunna var að opna veitingarstað þarna, erum búin að taka sumarhús á leigu í viku en við erum ekkert viss um að vera alveg heila viku, en stefnan er að koma heim til íslands í lok næstu viku. Þannig að ef það er eitthvað sem ég á að kaupa fyrir ykkur þá endilega látið mig vita sem fyrst. Haraldur þú mátt alveg senda mér sms með nafninu á því sem ég á að kaupa fyrir þig.

Annars er ég búin að ná árinu í skólanum og ekki meira um það.

Hlakka til að sjá ykkur öll eftir viku

Kveðja, Inga


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 20:14:43 / ingahall

Önnur einkun...

...og það var sjöa og er ég alveg sátt við það.

Og svo held ég bara áfram að hlaupa og hlaupa og það gengur allt samkvæmt áætlun og er ég farin að auka hraðann aðeins en samt ekki alveg eins mikið og ég vildi en þetta kemur allt saman með góða veðrinu.

Skiluðum verkefninu okkar í gær en síðasti dagurinn til að skila því var í dag og erum við bara ágætlega sátt við það.

Svo skín sólin bara eins og hún á að gera og ætla ég að reyna að njóta hennar næstu daga en svo er bara að vona að það komi góðar fréttir á mánudaginn og við Gunni þurfum ekki að taka síðasta prófið upp.

Læt þetta duga í bili

Kveðja, Inga


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 16:52:11 / ingahall

Fyrsta einkunin komin

og það var níu og er ég alveg í skíunum yfir því:D

Og svo var farið út að hlaupa og hlaupið 6.56km á 45 mín og brenndi 438 kaloríum.

Annars er verkefnið nánast búið og er það mikill léttir, er nefnilega orðin smá þreytt á þessu8|

Og veðurfræðingarnir eru búnir að breyta spánni og nú á að vera rigning og sól og allt að 25 gráður um helgina, en við njótum þess bara líka.

Kveðja úr skíunum, Inga


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.05.2007 16:33:12 / ingahall

6.7 km...

... í dag á 44:39 mínútum, meðalhraði 6:39min/km og brendi 448 kaloríum, ekki slæmt það;)

En annars er það að frétta að við erum langt komin með verkefnið okkar og ætlum að vera búin með það á fimmtudaginn, hmmm, hvað er ég búin að segja þetta oft8|

Annars er bara sól og sumar hérna og það spáir allt að 30 stiga hita og sól um helgina 8)

Sólar og sumarkveðja,

Inga


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 08:10:43 / ingahall

Hlaup númer 2 og 3

Er búin að hlaupa rúma 13 kílómetra núna eftir 3 skipti og brenna 298 kaloríum í hvert skipti, en núna þarf ég að fara að hlaupa lengra þannig að ég nái þessum 60 kílómetrum.

Annars erum við búin að vera í fríi frá verkefninu frá því á fimmtudaginn, en á föstudaginn fór ég í bæinn með Ástu, Þórunni, Guðrúnu og Amöndu og ég verð að segja alveg eins og er, ég var gjörsamlega búin á því þegar ég kom heim um kvöldið, sofnaði í sófanum um 9 leitið og fór svo inn í rúm kl 11 og hélt áfram að sofa og svaf til 9 morguninn eftir ;)

í Gær var bara slappað af fram yfir hádegi, en þá fór Gunni til Bödda að horfa á Manchester - Chelsea og ég tók mig til og gerði hreint og fór svo út að hlaupa.

Annars er bara sól og blíða og ætli maður noti ekki þetta góða veður og verði bara úti í dag.

Kveðja, Inga8)

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.05.2007 16:48:06 / ingahall

Ég veit, ég veit...

það er langt síðan ég skrifaði síðast, en þannig er mál með vexti að það hefur ekkert merkilegt gers hjá mér, en það sem á daga okkar Gunna hefur drifið síðan síðast er að

Gunni er búin að vera lasinn meira og minna í 2 vikur:cry: en hann er alveg að verða góður af þessari pest/flensu sem hann fékk. Ég fékk líka einhvern smá skerf að þessu en þetta lagðist aðallega í liðina mína og kjálkana, og er ég ekki enn orðin góð í kjálkunum, eins og ég hafi tukkið tykkjó í mörg ár án þess að hvíla kjálkana.

Af þessum sökum hefur verið lítið um hlaup hjá mér en nú á að taka þetta með trompi, Gunni er nefnilega búin að gefa mér ipod og hlaupagræjur sem tengjast honum þannig að nú mæli ég allt sem ég hleyp og mun bloggið mitt einkennast af því næstu vikurnar þar sem ég er búin að setja mér markmið og það er eins gott að ég nái þeim.

Markmið mín eru að hlaupa 12 sinnum næstu 4 vikurnar og 60 km á 4 vikum.

Fyrsta hlaupið var áðan og niðurstaðan þar var:

4.42 km á 30mín og 40sek og brendi 296 kaloríum

Annars gengur verkefnið okkar Gunna bara ágætlega og vonumst við að geta klárað það svona meira og minna í þessari viku, allavega er það mitt markmið.

Ætla að láta þetta duga í bili

Kveðja, Inga


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.04.2007 08:21:53 / ingahall

Jibbbbbííííííííí

.... ég er búin í prófi - allavega í bili - og nú er bara eitt verkefni eftir sem verður skrifað í mai.

Próflokum var fagnað að hætti dana, með því að fara í Nýhavn og fá sér einn léttann í sól og sumarblíðu áður en farið var út að borða.

Svo á bara að slappa af við að þvo þvott og taka til í dag og kannski skreppa aðeins út í sólina 8)

Annars er voða lítið að gerast hjá okkur þessa dagana en það fer vonandi eitthvað meira spennandi að gerast næstu vikurnar þar sem við ætlum að reyna að eiga frí á kvöldin og um helgar þegar við erum að skrifa þetta verkefni.

Sumar og sólarkveðjur,

Inga


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 13:34:15 / ingahall

Ekkert mont....

nei, það er ekkert mont lengur, var að koma úr prófi og það var ekki eins og ég vildi hafa það, enda yfirleitt aldrei þannig :( en ég var á tímabili að spá í að skila auðu en ákvað svo að ég myndir prófa, en málið er nefnilega þannig að ef maður skrifar eitthvað sem er ekki alveg rétt þá fær maður mínus stig og ég held að ég fái eitthvað af þeim og þá er ekkert víst að maður hafi náð :evil:

En annars er bara afslöppun núna, alveg þangað til á hádegi á morgun en þá fáum við 24 tíma verkefni þannig að það verður langur dagur á morgun 8|

 Ætla að láta þetta duga af svekki núna,

Hafið það gott og njótið dagsins

kv. Inga


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 15:50:55 / ingahall

Smá mont :-)

Var að koma heim úr hlaupatúr og viti menn ég hljóp 7 km án þess að blása úr nös :P og það verður lítið mál að hlaupa 10km þann 23 mai.

Sólar og sumar kveðjur8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2007 09:28:07 / ingahall

Hún á afmæli í dag....

hún á afmæli hún Sigríður litla systir. Til hamingju með daginn elsku besta Sigríður mín, vonandi færðu góðan afmælisdag. Er meira að segja búin að baka afmæliskökur handa þér, en þar sem þú ert ekki hérna þá verð ég bara að borða þær sjálf:haha: en ég er með einvherja köku fíkn núna.

Er sjálf á leiðinni út í sólina með bækurnar mínar og ætla að reyna að lesa smá í sólinni, get ekki meira inn á þessu blessaða eina bókasafni sem er opið í dag í skólanum, en svo eru fleiri opin á morgun og þá verð ég mætt þar, enda ekki seinna vænna að fara að reyna að læra þetta þar sem það er próf á miðvikudaginn.

 Sólarkveðjur frá Köben

Inga


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 07:40:00 / ingahall

Gleðilega páska

Gleðilega páska allir saman, vonandi hafið þið það sem allra best um páskana og passið ykkur nú á að borða ekki yfir ykkur af páskaeggjum. :lol:

Er búin að vera rosalega dugleg alla vikuna og sitja upp á bókasafni að lesa, nema á föstudaginn þá fannst mér eins og ég væri að verða lasinn þannig að ég var bara 4 tíma á bókasafninu og fór svo bara heim og beint upp í rúm og var þar þar sem eftir var af deginum og var orðin þokkalega frísk í gær.

Við Gunni eyddum deginum í gær með Gumma, Svönu, Kristófer og Benedikt og var það alveg frábært, fórum í langan göngutúr og enduðum svo á að borða með þeim í gærkvöldi.

 Svo á bara að slappa af í dag og svo er það alvaran á morgun8|

Páskakveðja,

Inga

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.04.2007 15:51:43 / ingahall

Hrikalega vinsæl!!!!!

Það er ótrúlegt hvað það koma margir inn á síðuna mína á hverjum degi en fáir kvitta. En ég hef tekið eftir því að það eru ca 20-25 heimsóknir á dag :) en mér finnst það ekkert slæmt, það er þá einhver sem les það sem ég skrifa.

Það nýjasta að frétta af mér er að loksins er ég byrjuð að hlaupa aftur og er það alveg frábært, manni líður svo vel á eftir, og nú hleip ég seinnipartinn þegar ég er búinn að vera upp á bókasafni allan daginn og ég held að þetta hjálpi mér bara við að halda geðheilsu :P

Hvað varðar prófið mitt góða þá gekk það ekki eins og ég vildi :whut: en nú er stefnan bara sett á að klára þessa önn eins vel og hægt er og svo verð ég bara að lesa og reikna í sumar8|

Læt þetta duga í bili, ætla að fara að njóta sólarinnar í smá stund8)

Kveðja, Inga

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti